Playa Serena - Spánn
Verð frá kr.- 259.900 á mann.
Október og Nóvember 2026.
Roquetas de Mar við Suðurstrendur Spánar.



Tímabil
Október - Nóvember
Staðsetning
Roquetas de Mar - Spánn
Verð frá
Kr.- 259.900 á mann
Playa Serena - Spánn
Playa Serena golfsvæðið er frábær kostur fyrir alla kylfinga. Svæðið er staðsett í Roquetas de Mar í Andalúsíu á Spáni. Þar er að finna og er í göngufæri við frábærar strendur Suðurhluta Spánar, eins og Serena og La Bajadilla. Roquetas de Mar er full af sögu sem er gaman að kynna sér á meðan þú ert ekki að spila golf. Það er einnig að finna mikið framboð af annari afþreyingu og er svæðið þekkt fyrir ferska sjávarrétti.Hér geta kylfingar notið sín allt árið um kring.
Golfvellirnir
Playa Serena
Golfvöllurinn á svæðinu er 18 holu völlur sem er vel við haldið allt árið um kring. Brautirnar eru breiðar og flatar en í kringum þær er að finna 9 vötn og nokkrar gloppur sem verja grínin. Völlurinn er sagður sá flatasti sem hægt er að finna á Spáni sem gerir hann auðveldann yfirferðar. Það sem gerir völlinn helst krefjandi eru langar brautir og hönnun grína. Völlurinn hefur verið metinn nægilega krefjandi, og hönnun hans nægilega góð, til þess að geta haldið stórar keppnir, bæði innlendar sem og alþjóðlegar.
Umhverfi vallarins er þakið fjölda trjá- og plöntutegunda sem ýta undir Miðjarðarhafsstemmninguna sem umlykur svæðið.





Hotel Bahía Serena
Gist verður á Hotel Bahía Serena sem er 4 stjörnu íbúðahótel við Playa Serena ströndina. Íbúðirnar sem eru innifaldar í ferðinni eru nýuppgerðar íbúðir með sjávarútsýni. Ásamt því að bjóða upp á frábært sjávarútsýni, eru herbergin hönnuð til að veita þeim sem þar dvelja öll þau þægindi sem nauðsynleg eru. Í hverju herbergi er frítt WiFi og LCD sjónvarp.
Á hótelinu er að finna inni- og útisundlaugar, funda- og skemmtanaaðstöðu, skemmtiatriði, hárgreiðslustofu, nuddstofu, heilsurækt og margt fleira.
Á hótelinu og í hótelgarðinum er að finna nokkra valmöguleika þegar kemur að mat. Alboran Buffet er aðal veitingastaðurinn á hótelin þar sem morgunverðurinn og innifalinn matur er framreiddur. Veitingastaðurinn bíður upp á rétti sem eru innblásnir úr héraði sem og með alþjóðlegum blæ. Fyrir þá sem vilja brjóta upp daginn og fara fínna út að borða er La Chalupa frábær kostur. Veitingastaðurinn er byggður upp með sjávarþema og bíður upp á rétti innblásna úr héraði, jafnt sjávarrétti sem og annars konar rétti.
Ferðadagsetningar haustið 2026
Ferðadagsetningarnar hér eru flugdagsetningar frá Íslandi. Ef þið viljið skoða möguleikann á öðrum dagsetningum fyrir hópinn ykkar getið þið sent okkur póst á elite@eliteferdir.is
- 8 dagar - 11-18 Nóvember
- 12 dagar - 20-31 Október, 31-11 Nóvember
